Hafnartorg Gallery

Fólkið á bak við Brand er Hafsteinn Ólafsson og Ólöf Vala Ólafsdóttir

BRAND er nýr og spennandi veitingastaður í Hafnartorgi Gallery. BRAND er systrastaður BÁL sem er staðsett í BORG29 og eru báðir staðirnir vín og grill bar sem notast við Japanskt Robata kolagrill sem nær allt að 800°C og gefur matnum einstakan kola-grill keim.


Eigendur BÁL og BRAND eru fagfólkið Hafsteinn Ólafsson og Ólöf Vala Ólafsdóttir. Hafsteinn hefur átt farsælan feril í keppnismatreiðslu, vann m.a. til gull og silfur verðlauna á Ólympíuleikum og Heimsleikum í matreiðslu með kokkalandsliðinu. Einnig vann Hafsteinn titilinn Kokkur ársins árið 2017. Ólöf er framleiðslumeistari og einn af fáum sommilier (vínþjónn) á Íslandi.


Share by: